Fullveldi.com

13.6.04

Fréttablaðið: Hlutlaus og óháður fjölmiðill eða pólitískt áróðurstæki?

Því hefur verið haldið fram í tengslum við hið svonefnda fjölmiðlamál að fjölmiðlar tengdir Baugi, ekki sízt Fréttablaðið, hafi verið afar hlutdrægir í umfjöllun sinni um málið og dregið taum eigenda sinna. Sem áhugamaður um hlutlausa og óháða fjölmiðlaumfjöllun um menn og málefni ákvað ég að taka saman það fréttamat sem birzt hefur í forsíðufréttum Fréttablaðsins frá því fjölmiðlamálið svonefnt hófst og kanna hvað mikla athygli málið fékk á forsíðum blaðsins, hvernig fréttavalið var almennt á forsíðunni og hvort hægt sé að segja að um hlutlausa umfjöllun hafi verið að ræða eða ekki.

Niðurstaðan er sú að í aðeins örfá skipti rötuðu önnur mál en fjölmiðlamálið í aðalfyrirsögn á forsíðu Fréttablaðsins á því tímabili sem skoðað var. Fjölmiðlamálið var í nær 70% tilfella aðalfyrirsögn á forsíðu blaðsins þann tíma. Vel má greina ákveðinn rauðan þráð í gegnum forsíðufréttir blaðsins sem er hörð gagnrýni á ríkisstjórnina og Sjálfstæðisflokkinn. Hins vegar er ekki hægt að segja að nokkurri gagnrýni sé fyrir að fara á aðila sem beittu sér gegn fjölmiðlafrumvarpinu eins og stjórnarandstöðuna, Baug/Norðurljós, formann Blaðamannafélagsins o.s.frv.

Athyglisvert er að Þór Vilhjálmsson, fyrrv. lagaprófessor og dómari við Mannréttindadómstól Evrópu sem fært hefur rök fyrir þeirri skoðun sinni að forseti lýðveldisins hafi ekki persónulegt vald til að neita að undirrita lög frá Alþingi, fékk engan stað í aðalforsíðufréttum Fréttablaðsins á meðan að ýmsir álitsgjafar, sem verið hafa jákvæðir í garð málflutnings andstæðinga fjölmiðlafrumvarpsins, fengu pláss þar og það jafnvel oftar en einu sinni. Í aðdraganda afgreiðslu Alþingis á frumvarpinu snerust síðan talsvert af forsíðufréttum blaðsins augljóslega um að reyna að kynda undir óánægju innan Framsóknarflokksins vegna frumvarpsins og gera mikið úr afstöðu Kristins H. Gunnarssonar og Jónínu Bjartmarz til málsins.

Síðast en ekki sízt er afar athyglisvert að á meðan fréttir um skoðanakannanir Fréttablaðsins, sem sýndu miklar óvinsældir ríkisstjórnarinnar og Davíðs Oddssonar, voru birtar með stóru letri á forsíðu blaðsins undir fyrirsögnum eins og: "Minnsti stuðningur við ríkisstjórn í áratug", "Stjórnin aldrei óvinsælli", "Davíð hefur aldrei verið jafn óvinsæll“, er einungis fjallað um niðurstöður nýjustu skoðanakönnunar blaðsins, sem sýndi að ríkisstjórnin væri að auka fylgi sitt á ný svo og Sjálfstæðisflokkurinn, á bls. 4 í blaðinu þann 8. júní og fréttin einungis kynnt á minnst áberandi stað á forsíðunni. Miðað við það sem á undan er gengið hefði maður haldið að það væri ekki minna merkileg frétt en hinar fyrri sem gengu út á hið gagnstæða. Nema boðskapur fréttanna skipti máli fyrir blaðið?

Einhver kynni að túlka þessa grein sem vörn fyrir Sjálfstæðisflokkinn og fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar en sá var þó ekki tilgangurinn. Ég tel einfaldlega algerlega ótækt að fjölmiðli, sem gefur sig út fyrir að vera hlutlaus og óháður, sé beitt í pólitískum tilgangi sama hvaða fjölmiðill á í hlut og hverjum slíkt framferði beinist gegn. Ég er auk þess persónulega engan veginn sannfærður um að sú leið, sem kveðið er á um í fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, sé sú rétta þó ég telji brýna nauðsyn á að ákveðnar leikreglur gildi á íslenzkum fjölmiðlamarkaði eins og á öðrum sviðum þjóðlífsins.

Hjörtur J. Guðmundsson