Fullveldi.com

8.8.04

Hvalveiðar í atvinnuskyni í sjónmáli?

Eins og fram hefur komið í fréttum á undanförnum vikum hafa möguleikar á því, að hvalveiðar í atvinnuskyni verði leyfðar á ný, aukizt verulega eftir að formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins, Hendrik Fischer, lagði fram tillögu þess efnis á ársfundi ráðsins í lok síðasta mánaðar. Tillaga formannsins var að vísu ekki samþykkt á fundinum, en engu að síður tekin ákvörðun um að halda áfram stefnumótunarvinnu um hana. Hugmyndin er að tekin verði endanleg afstaða til tillögunnar á næsta ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins að ári.

Þessum fréttum ber vissulega að fagna og verður að segjast eins og er að þetta útspil Fischers kom manni á óvart, enda hefur Alþjóðahvalveiðiráðið varla staðið undir nafni undanfarna tvo áratugi eða svo síðan bann við hvalveiðum tók gildi. Hefur ósjaldan verið talað um að ráðið ætti fremur að heita Alþjóðahvalfriðunarráðið þar sem störf þess undanfarin ár hafa ekki gengið út á að tryggja skynsama nýtingu hvala, eins og upphaflega var markmiðið, heldur að koma algerlega í veg fyrir hvalveiðar. Hafa Japanir jafnvel lýst því yfir að þeir kynnu að segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu og stofna nýtt ráð vegna þessa, en þeir hafa stundað vísindaveiðar á hvölum um árabil í trássi við vilja ráðsins.

Sérstaklega er ánægjulegt að Bandaríkin skuli hafa lýst yfir stuðningi við tillögu Fischers, en þeir hafa hingað til verið helzti bakhjarl þeirra sem hafa viljað friða hvali alfarið s.s. samtaka á borð við Greenpeace. Oft hefur verið bent á ákveðinn tvískinnung Bandaríkjamanna í þessum efnum í ljósi þess að þeir eru sjálfir stærsta hvalveiðiþjóð í heimi í tonnum talið. Lögðu þessir aðilar hart að bandarískum stjórnvöldum, eftir að hvalveiðar í vísindaskyni hófust hér við land fyrir ári, að beita Íslendinga efnahagsþvingunum, en heimild er fyrir slíku í bandarískum lögum. Fyrir skemmstu tilkynnti Bush Bandaríkjaforseti hins vegar að ekkert yrði af slíku.

Eins og áður segir er hugmyndin að tekin verði ákvörðun um tillögu Fischers á næsta ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem fram mun fara í Suður-Kóreu. Það verður því óneitanlega fróðlegt að fylgjast með því hvert framhaldið verður í þessum efnum.

Hjörtur J. Guðmundsson