Á maður að virða skoðanir annarra?
Ósjaldan heyrir maður sagt að manni beri að virða skoðanir annarra. Ég vil hins vegar leyfa mér að halda því fram að þetta sé tóm vitleysa. Nú er næsta víst að einhverjum bregði og hugsi með sér hvert ég sé að fara og að þetta séu nú ekki beint lýðræðisleg ummæli. Raunin er sú að í gegnum tíðina hefur það að virða rétt annarra til að tjá skoðanir sínar breyzt í að virða skoðanir annarra. Þarna kemur m.a. til sú tilhneiging fólks að einfalda hlutina, í þessu tilfelli um of.Franski heimspekingurinn Voltaire er sagður hafa beint þeim orðum eitt sinn til svarins andstæðings síns að hann fyrirliti skoðanir hans en væri engu að síður tilbúinn að deyja fyrir rétt hans til að tjá þær. Þarna erum við einmitt komin að kjarnanum í skoðanafrelsinu að mínu mati.
Staðreyndin er nefnilega sú að maður getur einfaldlega ekki virt (þ.e. borið virðingu fyrir) skoðanir sem maður er ósammála eða jafnvel fyrirlítur. Hins vegar getur maður hæglega borið virðingu fyrir rétti annarra til að tjá skoðanir sínar, sama hvaða álit maður kann að hafa á þeim. Þetta stafar af þeirri einföldu ástæðu að í lýðræðislegu samfélagi er réttur fólks til að tjá skoðanir sínar sá sami jafnvel þó skoðanir þess kunni að vera ólíkar og jafnvel algerlega á öndverðum meiði.
Hjörtur J. Guðmundsson
Birt einnig á:
www.ihald.is


