Fullveldi.com

18.10.05

Frábær landsfundur og frábær ræða

Nú er á enda vel heppnaður 36. landsfundur Sjálfstæðisflokksins. Það sem stendur upp úr er án nokkurs vafa frábær setningarræða Davíðs Oddssonar, nú fyrrverandi formanns flokksins, sem hann flutti sl. fimmtudag fyrir troðfullri Laugardalshöllinni. Óhætt er að segja að ræðan hafi lagst afar vel í fundarmenn sem sáu ítrekað ástæðu til að klappa fyrir henni á meðan Davíð flutti hana og enn meira þegar flutningi hennar var lokið. Sérstaklega er mér minnisstætt mikið klapp vegna ummæla hans um Evrópusambandið sem og það hvernig Samfylkingin hefur nálgast Evrópumálin. Var í tvígang klappað á meðan Davíð fjallaði um þau mál.

Ræðu Davíðs má annars nálgast á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, bæði á textaformi sem og upptöku af flutningi hennar. Hvet ég alla til að kynna sér hana sem ekki hafa gert það nú þegar og vil ennfremur nota tækifærið til að hvetja til þess að hún verði með einum eða öðrum hætti gefin út. Það skemmir síðan ekki fyrir að ræðan hefur greinilega farið afskaplega illa í marga pólitíska andstæðinga Sjálfstæðisflokksins. Það er alltaf indælt. Hafa þeir brugðist við með vandræðakenndu fálmi eins og m.a. er fjallað um í Staksteinum Morgunblaðsins í dag.

Hafi hins vegar einhver verið í vafa um pólitíska slagsíðu Fréttablaðsins ætti sá vafi nú að vera endanlega horfinn. Í forsíðufrétt blaðsins um opnunarræðu Davíðs var lögð áherzla, ekki á ræðuna sjálfa, heldur á gagnrýni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, á hana. Fyrirsögnin var tilsniðin í samræmi við það og allt eftir því. Fyrirsögnin var: "Viðbrögð við gagnrýni Davíðs Oddssonar á Samfylkinguna og forsetann: Eins og biturt fórnarlamb." Síðari hlutinn er tilvitnun í Ingibjörgu en ekki þótti þó ástæða til að setja það í það minnsta inn í gæsalappir heldur er því slengt upp eins og um hverja aðra staðreynd væri að ræða.

Síðan er fréttin sem vísað er til inni í blaðinu skoðuð og þar er ekki minnzt á umrædda gagnrýni Ingibjargar Sólrúnar. Gagnrýninni, sem undir eðlilegum kringumstæðum hefði auðvitað átt að vera algert aukaatriði, er slegið upp sem aðalatriði í stað ræðunnar sjálfrar og hvers vegna? Hver skyldi tilgangurinn með því hafa verið? Eðlileg blaðamennska? Nú er í sjálfu sér ekkert að því frá sjónarhóli blaðamannsins þó kannað væri með skoðun einhverra á ræðunni en að gera aukaatriði að aðalatriði og slá því upp á forsíðu blaðsins hefur augljóslega ekkert með fagleg vinnubrögð að gera. Þetta er ekkert annað en pólitísk misnotkun á Fréttablaðinu sem auðvitað er langt því frá að vera eitthvað nýtt.

Til samanburðar má nefna að forsíðufrétt Fréttablaðsins, um upphaf landsfundar Samfylkingarinnar sl. vor, byggðist ekki á gagnrýni Davíðs Oddssonar á setningarræðu Össurar Skarphéðinssonar. Reyndar hefði Davíð aldrei tekið þátt í slíku enda hefur hann látið þess getið að hann hafi alltaf lagt áherzlu á að láta eins lítið á sér bera í fjölmiðlum og hann hafi getað þegar aðrir flokkar hafi verið með sína landsfundi. Þetta þætti honum sjálfsögð og eðlileg kurteisi. En það er greinilega misjafnt hversu vel fólk er alið upp.

Reyndar var það svo að þó minnzt væri á setningarræðu Össurar í forsíðufrétt Fréttablaðsins daginn eftir setningu landsþings Samfylkingarinnar þá féll hún algerlega í skuggann af annarri pólitískri slagsíðu Fréttablaðsins, afdráttarlausum stuðningi þess við það að Ingibjörg Sólrún næði kjöri sem formaður flokksins. Fyrirsögnin á forsíðunni var: "Búist við sigri Ingibjargar". Og síðan var rétt imprað á ræðu Össurar í lok fréttarinnar. Vitnað var í tvær tengdar fréttir inni í blaðinu, á bls. 4 og 16.

Maður hefði svona fyrirfram haldið að á fjórðu síðunni yrði fjallað um setningarræðu formanns flokksins en það var þó aldeilis ekki heldur var þar fjallað um ræðu varaformannsins, Ingibjargar Sólrúnar. Á bls. 16, lengst inni í blaðinu, var síðan loks fjallað um ræðu Össurar. Hvergi í blaðinu var hins vegar að finna einu einustu frétt um álit stjórnmálamanna úr öðrum flokkum á því sem fram kom í ræðum Ingibjargar eða Össurar. Einhver önnur formúla hefur greinilega verið í notkun á ritstjórnarskrifstofum Fréttablaðsins þá en raunin er í dag.

Reyndar var nálgun Kastljóssins á ræðu Davíðs á fimmtudagskvöldið sömuleiðis fyrir neðan allar hellur. Ingibjörg Sólrún var þar sem kunnugt er fengin í drottningarviðtal í sjónvarpssal til að tjá sig um ræðuna fáeinum mínútum eftir að Davíð hafði lokið flutningi hennar. Hvað hefði verið sagt ef þetta hefði verið gert í vor með öfugum formerkjum? Davíð verið fenginn í drottningarviðtal í sjónvarpssal strax eftir ræðu Ingibjargar á landsfundi Samfylkingarinnar til að segja álit sitt á henni?? Að vísu hefði Davíð aldrei tekið þátt í slíkum skrípaleik eins og áður segir.

Á eftir var rætt við Karl Th. Birgisson, blaðamann og fyrrv. framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar, og Ólaf Teit Guðnason, blaðamann. Tjáði Karl sig þar um ræðuna vinstri hægri og var síðan beðinn að gefa henni einkunn í lokin af þáttarstjórnendunum þó hann hefði viðurkennt í viðtalinu að hann hefði hvorki heyrt né lesið ræðuna! Það kom þó ekki í veg fyrir að hann léti eins og hann væri sérfróður um innihald hennar og þess umkominn að gagnrýna hana á alla lund. Sá er þó auðvitað munurinn á Ríkissjónvarpinu og Fréttablaðinu í þessum efnum að um er að ræða hefðbundin vinnubrögð hjá því síðarnefnda.

En svo komið sé aftur að meðhöndlun Fréttablaðsins á ræðu Davíðs þá var hún einungis hið bezta mál þegar allt kemur til alls enda ljóst að blaðið gerði lítið annað með þessu útspili sínu en að staðfesta rækilega það sem kom fram í ræðunni um stöðu fjölmiðlamála á Íslandi sem og það sem Davíð og fleiri hafa sagt um þau mál fyrr og síðar.

Hjörtur J. Guðmundsson

Birt einnig á:
www.ihald.is