Var niðurstaðan þegar ákveðin?
Nú er póstkosningu Samfylkingarinnar, um málefni Íslands og Evrópusambandsins, lokið og ekki er hægt að segja annað en að útkoman sé reiðarslag fyrir flokksforystuna. Það er nefnilega svo innan Samfylkingarinnar að þar eru afar skiptar skoðanir um þessi mál eins og skoðanakannanir undanfarið hafa sýnt ljóslega. En þrátt fyrir þá staðreynd er ekki að heyra á helztu forystumönnum flokksins að skiptar skoðanir séu um málið innan hans enda hafa þeir lengi verið ósparir á jákvæðar yfirlýsingar um Evrópusambandsaðild.Maður spyr sig því óneitanlega til hvers var verið að halda póstkosningu um málið fyrst forysta Samfylkingarinnar virtist þegar búin að ákveða hver stefnan ætti að vera og þegar fyrir kosninguna hafa talið sig hafa umboð meðlima flokksins til að tjá sig afgerandi um málið. Össur, og ýmsir aðrir framámenn innan flokksins, hafa lengi látið eins og afstaða meðlima Samfylkingarinnar væri á hreinu og að þeir vildu ólmir í sambandið, allir með tölu. Þar hefur ekki talað Össur Skarphéðinsson, líffræðingur, heldur Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar.
Fyrir nokkrum vikum síðan kom einnig fram í fréttum Ríkissjónvarpsins að Össur hefði þá þegar verið búinn að marka fullmótaða stefnu fyrir Samfylkinguna í málefnum Íslands og Evrópusambandsins. Var þá póstkosningin bara sjónarspil og blekking? Bara eitthvað formsatriði? Er þá allt gjammið um þetta yndislega flokkalýðræði innan Samfylkingarinnar ekki pappírsins virði? Niðurstaðan fyrirfram ákveðin. Þetta minnir óhugnanlega á starfsaðferðir Evrópusambandsins sjálfs.
Í samræmi við þetta sömdu áróðursmeistarar Össurar spurningu fyrir póstkosninguna sem bæði var hlutdræg og villandi og gekk þannig þvert á allar reglur um slíkar spurningar. Auk þess verður ekki betur séð en að spurningunni hafi verið ætlað að knýja fram fyrirfram ákveðna niðurstöðu. Með því móti átti væntanlega að falsa vilja meðlima Samfylkingarinnar og láta líta út fyrir að meirihlutavilji sé fyrir því að ganga í Evrópusambandið. Þetta kom m.a. skýrt fram í grein Páls Vilhjámssonar í Morgunblaðinu “Spurt út í hött um ESB” frá 16. síðasta mánaðar.
Evrópusambandssinnarnir í Samfylkingunni hafa þegar ákveðið að Evrópumálin eigi að vera kosningamál í vor, eins og ítrekað hefur komið fram, og töldu þeir sig því væntanlega verða að tryggja með öllu móti að ákveðin niðurstaða fengist í póstkosningunni jafnvel þó það gengi þvert á allan lýðræðislegan hugsunarhátt og minnti helzt á vinnubrögð í kommúnistaríkjum Austur-Evrópu, já eða bara Evrópusambandinu.
Annars hefði verið fróðlegt að vita hvað hefði gerzt ef niðurstaða póstkosningarinnar hefði ekki verið í samræmi við vilja Össurar og félaga. Hefði þá kosningin ekki bara verið endurtekin aftur og aftur unz niðurstaða fengist sem væri þeim þóknanleg? Eða leitað allra leiða til að fara í kringum lýðræðislega niðurstöðu þeirra? Tja, svona eins og Evrópusambandið er þekkt fyrir að gera?
Niðurstaða póstkosningar Samfylkingarinnar er annars ljós. Hún segir ekkert um afstöðu meirihluta meðlima flokksins til Evrópusambandsaðilar, einungis afstöðu lítils hluta þeirra.
Hjörtur J. Guðmundsson


