Fullveldi.com

8.9.03

Sannar "goðsagnir" um ESB

Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, ritar grein í Morgunblaðið þann 28. ágúst s.l. og er tilefnið grein eftir Daniel Hannan, þingmann brezka Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, sem birzt hafði í blaðinu tæpri viku áður. Grein Hannans fjallaði um tilhneigingu Evrópusambandsins til að staðla ótrúlegustu hluti niður í minnstu smáatriði og ennfremur hversu áhugavert væri að fylgjast með ýmsum embættismönnum sambandsins reyna jafnan að fela það sem þeir væru raunverulega að gera.

Hannan tók banana og agúrkur sem dæmi um staðlaáráttu Evrópusambandsins og nefndi þar til sögunnar reglugerðir sambandsins þar sem kveðið væri á um leyfilega stærð og lögun fyrsta flokks banana og agúrka. Nákvæmt mál væri tekið fram í reglugerðunum og væri t.a.m. leyfilegur lágmarks bogi á agúrkunum 10 mm fyrir hverja 10 sm í lengd.

Reglugerðafrumskógur ESB
Andrés segir að grein Hannans sé endemisvitleysa og þvæla og virðist vera frekar heitt í hamsi. Ennfremur segir Andrés að fullyrðingar, um að Evrópusambandið sé reglugerðabákn, séu ekkert annað en þrautseig goðsögn. Ekki verður þó séð að mikið fari fyrir rökum í grein Andrésar og ekki annað að sjá en að innihaldslausar fullyrðingar séu þar í aðalhlutverki.

Kannski þessi meinta goðsögn sé einmitt svona þrautseig vegna þess að hún sé sönn? Menn þurfa a.m.k. ekki annað en að kíkja á heimasíðu Evrópusambandsins til að fá smjörþefinn af þeim frumskógi laga, reglugerða og tilskipana sem sambandið býr yfir. Þar má t.d. berja augum a.m.k. á þriðja tug reglugerða og tilskipana sem fjalla með einum eða öðrum hætti um banana og þar á meðal reglugerð nr. 2257/94 sem Hannan nefndi í grein sinni.

Í reglugerðinni má með eigin augum sjá gott dæmi um þá ótrúlegu smámunasemi og skriffinsku sem ósjaldan er kennd við Evrópusambandið. Reglugerðin er útprentuð fimm þéttritaðar blaðsíður og fjallar sérstakur kafli í henni um leyfilega stærð og lögun banana. Er þar t.a.m. tekið fram að bananar í öllum gæðaflokkum megi almennt séð ekki vera minni en 14 sm og að boginn á þeim megi ekki vera minni en 27 mm. M.ö.o. er ekki heimilt að selja banana innan Evrópusambandsins sem stangast á við þessar reglur.

Bananar þurfa ennfremur að uppfylla fjölda annarra almennra skilyrða, óháð því hvaða gæðaflokki þeir lenda í. Þetta er síðan engan veginn bundið við banana og agúrkur og er sömu sögu að segja um t.d. jarðarber, kirsuber, spínat, sveppi, hvítkál, gulrætur, blaðseljur o.s.frv. o.s.frv. Það er því ekki að sjá að Hannan hafi á nokkurn hátt farið með rangt mál í grein sinni. Síður en svo.

Pantaðar reglugerðir?
Andrés segir að reglugerðum sem þessum hafi verið komið á að beiðni neytenda og framleiðenda, en ekki embættismannanna í Brussel. Þetta hljómar óneitanlega eins og verið sé að reyna að koma ábyrgðinni af reglugerðunum yfir á einkaðaðila og fría þannig embættismenn Evrópusambandsins ábyrgð. Já, það væri sennilega ekki ónýtt fyrir Alþingi að geta alltaf fríað sig ábyrgð á eigin lagasetningu á þeim forsendum að einhverjir einkaaðilar úti í bæ hafi pantað hin og þessi lögin. Lagasetning og reglugerðasmíði Evrópusambandsins eru þó að sjálfsögðu sambandsins og einskis annars sama hvað einhverjum pöntunum einkaaðila líður.

Auðvitað er það annars almennt séð hið bezta mál að settar séu ákveðnar reglur, t.a.m. til að tryggja hagsmuni neytenda, en fyrr má nú aldeilis vera. Allt á sér sína öfga. T.a.m. sé ég ekki hvað það kemur innri gæðum banana við hversu bognir þeir eru. Fróðlegt væri líka að vita hvernig embættismenn Evrópusambandsins reikna þessar lágmarkstærðir sínar út upp á millimetra.

Andrés segir síðan að orð Hannans, um að embættismenn Evrópusambandsins reyni að fela það sem þeir eru raunverulega að gera, séu alveg kostuleg og spyr hvort eitthvað sé að marka menn sem svona segi. Staðreyndin er hins vegar sú að umræddir embættismenn neituðu því á sínum tíma fram á síðustu stundu að til stæði t.a.m. að koma á sameiginlegum gjaldmiðli innan sambandsins, sameiginlegu saksóknaraembætti, sameiginlegum hersveitum og sameiginlegri stjórnarskrá, svo eitthvað sé nefnt, þó undirbúningur að slíku væri þá löngu hafinn.

Reiðir Evrópusambandssinnar
Það er annars kannski ekkert einkennilegt þó Evrópusambandssinnar séu ævareiðir yfir þessum málum, eins og Hannan nefndi í grein sinni og grein Andrésar er ágætt dæmi um. Reiði þeirra beinist þó væntanlega fyrst og fremst gegn Evrópusambandinu fyrir að senda frá sér alla þessa hillurekka af ósjaldan arfavitlausum og smámunasömum lögum og reglugerðum sem þeir þurfi síðan að reyna að verja. Reiði þeirra gagnvart okkur sjálfstæðissinnum byggist aftur væntanlega á því að skyldum endilega þurfa að reka augun í þetta og upplýsa almenning um það.

Andrés kvartar einmitt yfir því að við andstæðingar fyrirhugaðs Evrópusambandsríkis höfum oft "vaðið gagnrýnislaust uppi í fjölmiðlum og borið þar á borð nánast hvaða vitleysu sem er". Ég kannast að vísu ekkert við það hvað Andrés er að fara, en hverra er að gagnrýna okkur ef ekki einmitt Andrésar og skoðanabræðra hans? Hvers vegna hafa þeir ekki gagnrýnt okkur ef það sem við segjum er svona mikil vitleysa? Það væri þó aldrei að skrif okkar væru bara alls engin vitleysa og að þeir Evrópusambandssinnar ættu einfaldlega í stökustu vandræðum með að gagnrýna þau?

Annars væri hægt að hafa miklu lengri tölu um smámunasemina í reglugerðunum, sem rætt er um hér að framan, en hægt er að koma fyrir í stuttri blaðagrein. Ég hvet hins vegar alla, sem áhuga kunna að hafa, eindregið til að kynna sér þær og fleiri slíkar á heimasíðu Evrópusambandsins (www.europa.eu.int). Um er að ræða oft á tíðum alveg bráðskemmtilegar lesningar - þ.e.a.s. fyrir þá sem eru svo lánsamir að standa fyrir utan þennan ófögnuð!

Hjörtur J. Guðmundsson

(Birt í Morgunblaðinu 8. september 2003)

Birt einnig á:
www.heimssyn.is