Fullveldi.com

4.1.04

Hlutlausir fræðimenn?

Manni finnst ósjaldan nokkuð sérkennilegt þegar verið er að fjalla um einhver álitamál varðandi Evrópusambandið í íslenzkum fjölmiðlum og kallaður eru til einhverjir sérfræðingar í málaflokknum. Þessum sérfræðingum er væntanlega ætlað það hlutverk að gefa hlutlaust álit á þeim málum sem eru til umfjöllunar hverju sinni og varpa frekara ljósi á þau fyrir almenning. Gallinn er hins vegar sá að ósjaldan eru þessir sérfræðingar menn sem afskaplega erfitt er að ætlast til að geti fjallað hlutlaust um þessi mál, einfaldlega vegna þess að þeir eru virkir þátttakendur í þeirri pólitísku umræðu sem er í gangi um þau í þjóðfélaginu.

Dæmi um þá aðila, sem gjarnan eru kallaðir til af þessu tilefni, er t.d. Eiríkur Bergmann Einarsson sem er stjórnmálafræðingur að mennt. Hins vegar vill svo til að hann er líka yfirlýstur Evrópusambandssinni og einn helzti hvatamaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Að síðustu er hann svo stjórnarmaður í Evrópusamtökunum sem eru, sem kunnugt er, pólitísk samtök sem hafa það að markmiði að Ísland gangi í sambandið. Annað dæmi er Úlfar Hauksson sem er stundakennari í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, en situr jafnframt í varastjórn Evrópusamtakanna og er auk þess fyrrverandi formaður þeirra.

Nú flögrar ekki að mér að efast um fræðimannsheiður þeirra Eiríks og Úlfars, en mér dettur heldur ekki í hug að gera þá ósanngjörnu kröfu til þeirra að þeir séu hlutlausir í umfjöllunum sínum um hápólitískt álitamál sem þeir hafa báðir tekið virkan þátt í að ræða á vettvangi stjórnmálanna um árabil. Báðir eru þeir vissulega fræðimenn, en það segir bara ekki alla söguna því þeir eru líka stjórnmálamenn og það verður að sjálfsögðu einnig að taka inn í myndina. Þrátt fyrir það eru þeir ávallt titlaðir sem stjórnmálafræðingar við álitsgjafir sínar, en ekki minnzt á aðra aðkomu þeirra að málinu.

Það dytti sennilega fáum aðilum í hug að gera ráð fyrir því að bók eftir Davíð Oddsson um einkavæðingu væri hlutlaust yfirlitsrit fyrir þá sem vildu kynna sér viðfangsefnið út frá öllum hliðum málsins og sama er væntanlega að segja um það ef Steingrímur J. Sigfússon ritaði sambærilega bók um umhverfisvernd. Bæði Davíð og Steingrímur eru án efa mjög vel að sér í þessum málum, en það dettur varla neinum í hug að ætlast til þess að þeir séu hlutlausir í afstöðu sinni til þeirra - eðli málsins samkvæmt.

Hins vegar virðast ýmsir fjölmiðlar á Íslandi halda að menn, sem eru á kafi í hlutdrægum, pólitískum umræðum um Evrópusambandið, geti bara skipt um sokka þegar þeim dettur í hug og gefið hlutlaust álit á málinu. Ef einhver umfjöllun á að vera hlutlaus þarf hún að lýsa öllum hliðum málsins og ég á afskaplega erfitt með að sjá fyrir mér t.a.m. þá Eirík Bergmann Einarsson og Úlfar Hauksson koma á framfæri sjónarmiðum þeirra sem eru andsnúnir aðild Ísland að Evrópusambandinu og alls ekki á hlutlausan hátt til jafns við þeirra eigin pólitísku afstöðu til málsins.

Ég vil hvetja íslenzka fjölmiðlamenn til að taka sér þetta til umhugsunar. Að staðið sé að málum með þessum hætti hlýtur að teljast afar vafasamt, eða í það minnsta einkar óheppilegt, frá sjónarhóli þeirrar vönduðu og ábyrgu vinnubragða sem ég geri ráð fyrir að aðilar á íslenzkum fjölmiðlamarkaði vilji vera þekktir fyrir.

Hjörtur J. Guðmundsson

(Birt í Morgunblaðinu 29. desember 2003)

Birt einnig á:
www.heimssyn.is